|
29.04.2010 15:07:44 / bloggaraspogg
Ja hérna...loks sest ég niður og hripa nokkur orð...Facebook tekur orðið allan minn bloggtíma hehe...
Ég er að passa þessa dagana upp á orkubúskapinn minn. Þarf verulega að íhuga hvað ég geng nálægt þreki mínu. Í gær fór ég heim kl 1 og svaf í tvo tíma, algjörlega yfirkeyrð. Kannski er lausnin sú að leggja sig í smástund á hverjum degi....
Er samt nokkuð spræk núna og hlakka til að fá gesti um helgina. Elísabet kemur með börnin sín og systir hennar með sinn strák. Mikið fjör, mikið gaman....
Held bara að það sé komið vor og líka í sálina. Elska að labba úti og hlusta á umhverfið. Sigga vinkona segir að það eigi að faðma trén því þau gefi frá sér heilunarorku. Ég faðmaði eitt í morgun og flúði svo undan forvitnisaugnaráði konunnar á eftir mér....
Stutt og laggott núna...meira seinna...lofa!
Kveðja, Adda
»
19.03.2010 16:42:55 / bloggaraspogg
Mikið svakalega er ég löt að skrifa hér! Þarf að bæta úr því sko.... Ég er komin með vor í sálina og farin að ganga úti sem ég hef ekki verið nógu dugleg við í vetur. Sumarið leggst afar vel í mig, get ekki annað sagt og held ég að ég verði mikið á ferðinni norður á Sauðárkrók þar sem kærastan mín býr  Páskarnir eru á næsta leiti og lífið gæti nú varla verið mikið betra! Ég vinn núna 20% starf í Hugarafli og er annars á örorku. Er enn að jafna mig og ná mér í orku. Mér finnst ógó gaman í vinnunni og hún er afar gefandi fyrir mig..... Plön mín fyrir sumarið eru helst þau að láta mér og mínum líða eins vel og hugsanlegt er. Ég er farin að lifa mikið í núinu og hætt að plana allan fjandann eins og ég gerði áður fyrr. Held að besta lífsviðhorfið sé að fanga augnablikið á hverjum tíma, enda þýðir Carpe diem einmitt að fanga augnablikið! Ég missi sennilega íbúðina ofan af mér eftir tvö ár því lánin mín eru öll í frystingu þangað til og ég kem ekki til með að hafa efni á að borga þau þegar frystingin losnar. Enda á ég heldur ekkert lengur í íbúðinni og skulda frekar en hitt. Átti fjórar millur fyrir hrun... Samt er engin svartsýni í mér. Ég hef séð það mun svartara og lent í nógu miklum hremmingum til að skilja að lífshamingjan felst eingöngu í því sem ekki er hægt að þreifa á. Ég á yndisleg börn og barnabarn, konu sem elskar mig eins og ég hana og frábæra vini og fjölskyldu. Hvað er hægt að biðja um meira? Carpe diem - gríptu augnablikið.....kannski ættum við að læra af reynslunni og nýta kreppuna okkur í vil. Horfa meira á það smáa heldur en það stóra, læra að elska umhverfið í kringum okkur og minnka hraðann. Kannski var kreppan bara til góðs...hraðinn var orðinn skelfilegur á öllum í hinu svokallaða góðæri. Stöldrum við og horfum á blómið sem vex við tærnar á okkur. Ekki trampa það niður í leit að fallegra blómi lengra í burtu.... Carpe diem.... Adda heimspekiprófessor
»
31.01.2010 21:41:23 / bloggaraspogg
Janúar að verða búinn...tíminn líður hratt - á gervihnattaöld....
Það er sama hvað gerist í þjóðmálunum, veðurfarið breytist eftir sínum hentugleikum og tíminn tifar áfram. Á föstudagskvöldið var ég í 30 ára afmæli konu sem ég man eftir 9 ára gamalli - í náttkjól um verslunarmannahelgi 1989. Síðan hafa bara 22 ár hreinlega ætt áfram! Ég á dóttur sem verður 28 ára á árinu og ég sem hélt að ég væri ca 28 ára!
Dóra fermist eftir tvö ár - og hún er nýfædd! Og svo á ég 18 ára dóttur sem var með snuðin sín í stólnum bara í fyrra minnir mig!
Það er bara ég sem eldist ekki...í huganum er ég alltaf svona 25 - 30 ára. Ætli ég verði það líka eftir svona 20 ár? Þegar ég mála mig sé ég pokana yfir augunum og hrukkur á hálsinum. Þegar ég lít á hendurnar á mér sé ég hendur miðaldra konu. Samt er ég bara 25.....
Líf mitt hefur ekki alltaf verið dans á rósum, síður en svo. Þegar ég horfi yfir veginn sé ég hvað ég hef komist langt. Og hvað mig langar lítið til baka. Ef ég á að segja eins og er, held ég að ég myndi bara ekki megna að lifa allt upp á nýtt. Þess vegna vil ég ekki hanga í fortíðinni. Ég bara vil hana ekki aftur. Maður á að horfa fram á við, auðvitað, og gleðjast yfir hverju því ári sem færir mann áfram í þroskanum....
Þess vegna vil ég alls ekki verða 25 ára aftur. Ég er fullkomlega ánægð með að vera 47 ára. En það breytir því ekki að ég er 25 í anda.....
Hafið góðar stundir lömbin mín... Kveðja, Adda síunga
»
14.01.2010 23:17:17 / bloggaraspogg
Það er farið að lengja daginn. Fyrir mánuði síðan var aldimmt kl 4, núna er bjart til hálffimm. Það boðar vor. Ég væri alveg til í vor núna. Hlakka rosalega til að fara að labba í dalnum aftur. Ég ætlaði í gær að fara í göngutúr en var svo lengi að hugsa það að það var orðið dimmt loks þegar ég ákvað að fara og ég hætti við......
Venjulega fer ég í sund á morgnana en undanfarna daga hef ég verið að passa litla stelpu frá kl 8 á morgnana og ætlað á hverjum degi að bæta mér upp sundleysið með því að fara út að labba síðdegis. En svo hlaupa klukkutímarnir frá manni ussum svei!
Hugsa hlýtt til helgarinnar. Ætla að hvíla mig og fara daglega í sund, þess á milli að rækta eigin heilsu. Er farin að hafa of mikið að gera á hverjum degi eftir að ég byrjaði að vinna í Hugarafli. Tók eftir því í gærkvöldi að ég var gjörsamlega úrvinda kl hálfellefu sem er alveg klukkutíma of snemmt fyrir mig......
Sit núna í Hafnarfirði heima hjá Siggu og nýt þagnarinnar. Adam sefur í sófanum og ég er ein vakandi með kettinum......
Er í átaki en hef örugglega ekki mikið misst þessa vikuna vegna of lítillar hreyfingar. Tek mig fullkomlega á um helgina sko!
Já, lífið er bara nokkuð gott þessa dagana....sem betur fer. Nenni ekki að fjargviðrast vegna þjóðmálanna...held að þjóðin muni lifa þetta af eins og annað. Við erum heppin hér að fá ekki yfir okkur jarðskjálfta á borð við þennan á Haiti. Við munum ekki nógu oft eftir að þakka fyrir allt það góða sem við höfum hér. Ég til dæmis svelti ekki og börnin mín hafa í sig og á.....allir sem ég elska eru á lífi og bara nokkuð heilsuhraustir. Ég sjálf er við ágæta heilsu og meira get ég varla beðið um. Ég treysti bara Guði fyrir landinu okkar og hananú!
Verið góð hvert við annað lömbin mín og munið að þakka fyrir allt það góða sem þið hafið....
Kveðja, Adda væmna
»
06.01.2010 17:28:44 / bloggaraspogg
Hey...ég var búin að skrifa hér inn helling sem svo datt út bara! Fúlt...nenni ekki að skrifa aðra sögu sko!
Hitt er svo annað mál að átak er hafið í Lundarbrekku 4....er að spá í að taka af mér svona 10 kg og vera búin að því að mestu leyti í vor eða fyrripart sumars. Ætti kannski að taka að mér að taka af mér kg fyrir aðra....mér virðist það ganga bara mjög vel en verra að halda þeim niðri sko!
Nú er það bara hreyfing, vatn, ávextir og léttar mjólkurvörur plús ljóst og létt kjöt....og grænmeti að sjálfsögðu.....
Hulda mín....þú verður að láta þér þessar fáu línur duga úr því sagan sem ég var búin að semja handa þér datt út hehe....taktu bara upp tólið og hringdu ef þú þarft meira bull frá mér!
Vil svo hvetja tvær systur í Kópavogi áfram í átakinu...við verðum þrjár þær alflottustu í sumar!
Gleðilegan janúarmánuð AGS (ennþá Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn)
»
23.12.2009 00:05:53 / bloggaraspogg
Djöfull er maður orðinn latur við að skrifa hér inni! Kannski bara af því fólk er hætt að kíkja á bloggsíður og húkir bara á Facebook. Þar skrifar maður allar fréttir og Hulda, þú þarft að fá þér Face....þó ekki væri nema bara til að skoða myndir hjá Ósk!
Enn einu sinni komin jól. Þessi jól verða góð, ég finn það á mér. Ég nenni ekki að stressa mig neitt og held að það komi jól þó allt sé ekki pússað út að dyrum. Á ekki mikið eftir, aðallega fara og kaupa eggjalíki sem er ófáanlegt virðist vera og kerti. Já og svo búa til desertinn og það. Er að fara að passa lítinn sjö ára engil á morgun fyrir vinkonu mína og ætla bara að chilla fram til kl 3...
Stelpurnar eru ekki hjá mér þessi jólin...það verður skrýtið að hafa þær ekki. En Tara, Pétur og Silja verða og liklega líka Tanja....og mamma, svo þetta verður alveg í lagi. Svo verður fjör hér á gamlárskvöld og sjö manns í mat...gaman gaman....
Jólamatseðillinn: Í forrétt verður rjómalöguð aspassúpa með hvítu brauði, aðalréttur er hamborgarahryggur og lambafille fyrir mig sem ekki má borða reykt og saltað kjöt og eggjalaus möndluís í desert....
Ég vil bara segja við alla: Gleðileg jól og verði nýja árið ykkur öllum farsælt
Kveðja, Adda
»
24.11.2009 16:19:55 / bloggaraspogg
Jæja...hér er ég mætt, mun bjartari en síðast. Hef verið niðri um tíma en tel það hafa stafað af því að ég sinnti ekki svefnþörf minni né nennti í hreyfingu. Það hefnir sín alltaf. Núna ætla ég að fara daglega í ræktina og svo dugleg í lampanum og snemma að sofa á kvöldin. Ég er nefnilega kvöldgöltrari og veit fátt betra en að vaka frameftir. Má það hins vegar alls ekki! Það er bara aginn sem dugir gott fólk og ég ætla að reyna að haldast á yfirborðinu út veturinn. Get kannski ekki lofað því alveg en mun svo sannarlega reyna.....
Það er komið pínu jólaskap í mig, er að verða búin með gjafirnar. Þá taka kortin við en næst á dagskrá er afmælið hennar Dóru. Ég hélt upp á afmæli Sunnu á laugardaginn með mexikóskri veislu fyrir vinkonurnar og þótti takast prýðilega. Svo er það piparkökubakstur um helgina!
Vona svo innilega að þessi góða líðan haldist...
Kveðja, Adda
»
17.11.2009 21:32:22 / bloggaraspogg
Það er komin reynsla á lampann og ég held að hann hafi hjálpað mér um tíma. Hef reyndar verið í svolítilli flækju með líf mitt og akkúrat núna er ég þung og leið. Sef kannski ekki nóg heldur. Ætla að reyna að laga það. Ég hef tröllatrú á lampanum en kannski gerir hann ekki kraftaverk. Kannski þarf meira til....
Ég er yfir mig ánægð með viðbrögð fólks við greininni minni og fréttinni á Stöð 2. Get samt ekki annað sagt en að ég var dauðstressuð yfir þessu um tíma. Ég vona samt bara að fleiri láti í sér heyra og kvarti yfir ástandinu, fleiri en ég.....
Átti tíma hjá sálfræðingi í dag á spítalanum. Þegar ég mætti kom í ljós að hún er reyndar deildarlæknir en ekki sálfræðingur og eftir að hafa heyrt alla mína sögu, alla frá barnæsku, sagði hún að sagan mín væri svo mikil og erfið að hún treysti sér ekki í hana. Hún ætlar að finna annan sálfræðing, reynslubolta eins og hún orðaði það, einhverja konu sem hefur reynslu í að vinna með þessi mál. Ég verð að viðurkenna að mér hefur ekki liðið of vel í dag, kannski eftirköst af því að segja söguna mína.....
Það dimmir og dimmir. Bráðum kemur aldrei birta yfir daginn. Ég þarf að vera duglegri við að fara út að labba, bara kem mér ekki í það. Fór í ræktina í dag og átti mjög erfitt með að haldast á brettinu. Var þreytt og þung og langaði bara heim að sofa. Kláraði ekki einu sinni að horfa á B&B og þá er nú mikið sagt!
Er að spá í að fara heim í fyrramálið eftir að hafa skutlað Dóru í skólann og skríða upp í rúm. Eða kveikja á lampanum. Veit ekki.......
Tannlæknirinn minn segir að ég sé eina manneskjan sem hann hefur haft sem hefur lent í að það brotni upp í henni króna eins og mér og það alveg ný króna! Fæ nýja frítt skilst mér.....
Ble ble... AGS
»
05.11.2009 23:34:26 / bloggaraspogg
Veturinn læðist að. Með myrkum klóm sínum grípur hann í trjágreinar og blæs hrollköldum vindi á gluggann minn. Myrkrið heltekur tilveruna í skammdeginu. Það birtir sífellt seinna og seinna á morgnana og dimmir sífellt fyrr og fyrr á daginn. Mér líður eins og manneskju sem er dæmd til hengingar og dagarnir líða miskunnarlaust hjá.
Þegar klukkan hringir hálfsjö á morgnana get ég ekki hugsað mér að fara á fætur. Það er eins og hangi blýþung lóð í öllum útlimum og ég vil bara sofa og sofa og hverfa og ekki vera til. Ég berst við sjálfa mig að setjast upp og er óratíma að klæða mig. Kvíðinn fyrir deginum liggur í maganum eins og ómelt fæða og ég á mjög erfitt með að hugsa mér að nú sé að byrja nýr dagur. Ég fer fram í eldhús og elda hafragraut og vek svo Dóru.
Mig langar aldrei í ræktina á morgnana. Samt set ég niður í tösku eins og vélmenni, er forrituð fyrir að setja í ræktartöskuna, nærföt, hrein föt, sjampó, handklæði, brúsa....Svo keyri ég Dóru í skólann og berst við eilífa löngunina til að fara aftur heim og leggja mig...
Það er ekki fyrr en ég er búin að vera dágóða stund á brettinu eða í tækjunum sem ég fer að líta ljósið aftur. Fer yfirleitt heim og prjóna en dagsyfjan tefur fyrir mér. Mér er hreinlega fyrirmunað að vera vakandi fyrir hádegi!
Nú í morgun fór ég og keypti mér dagljósalampa. Meiningin er að sitja fyrir framan hann á hverjum degi í klukkutíma. Ég bið og vona að þessi lampi hjálpi mér....
Í sumar var öldin önnur. Ég spratt á fætur á morgnana og fór gjarnan í göngutúr eða í sund. Man ekki eftir neinni dagsyfju þá!
Ég set allt mitt traust á lampann. Langar ekki að hafa annan vetur eins og þann í fyrra. Væri til í að vera eins brött á morgnana og ég er á kvöldin. Gæti prjónað fram á nótt ef ég myndi leyfa mér það og ekki taka lyfin mín.....
Þunglyndið er bölið sem ég berst sífellt við. Það virðist hreinlega ekki skipta neinu máli hvað ég tek mikið af lyfjum eða hvernig aðstæður mínar eru....þunglyndið sigrar mig alltaf....
Vona að ég sigri núna Kveðja, Adda
»
31.10.2009 13:41:52 / bloggaraspogg
Jæja, þá er maður enn einu sinni að skríða saman og að skríða út af spítala. Alveg er það merkilegt hvað þessi sjúkdómur ætlar að vera hjá mér. Ég get bara hreint ekki skilið hvað ég á að gera til þess að koma í veg fyrir að leggjast aftur og aftur inn á spítala....
Núna var ég að vinna í sjálfshjálparhópi úti í bæ, í Stígamótum og það tel ég að hafi hreinlega lagt mig inn. Vinkona mín segir að ég hafi farið neðar og neðar í hvert einasta skipti sem ég kom heim frá Stígamótum. Er núna búin að taka þá ákvörðun að hætta þessari vinnu og fá bara faglega aðstoð hjá sálfræðingi. Núna stendur loksins til á spítalanum að ég fái sálfræðiaðstoð án þess að þurfa að borga hvítuna úr augunum fyrir það. Vona bara að það virki. Er orðin mjög þreytt á þessu.....
Ég fór í sund í dag og það var æðislegt, að komast loksins í þjálfun. Er búin að vera í hvíld alla vikuna inni á spítalanum og þarf bara núna að komast í hreyfingu!
Hef svosem lítið meira að segja að svo stöddu... Kveðja, Adda
»
18.10.2009 00:21:23 / bloggaraspogg
Datt svona aðeins í hug að blogga smá. Annars er bloggið mit að deyja út, allir komnir á fésið og ég veit bara um eina manneskju sem er ekki þar....ha Hulda? Þín vegna blogga ég svo þú vitir nú hvað ég geri yfir daginn hehe....
Hef samt lítið að segja....allir virðast leggjast í svínaflensu nema ég. Mitt heimili hefur sloppið bærilega upp á síðkastið....
Fór í barnaafmæli í dag þar sem Tara skemmti öllum með að segja frá öllum kærustunum hennar Sunnu, frænku sinni ekki til ómældrar ánægju.......
Núna skyggir meir og meir og á mánudaginn fer ég og kaupi mé dagsljósaperur. Er að koðna niður eins og vanalega á þessum árstíma.....
Er mjög hneyksluð yfir samstöðu manna með Gunnari Selfosspresti sem hefur káfað á ungum stelpum.....ef menn geta ekki virt mörk annarra, þá eiga menn ekki að vera í prestsembætti. Alltaf svo ágætt að fá útrás fyrir perraskapinn í krafti embættis síns...hefur verið landlægur andskoti í mörg herrans ár! Ef einhver myndi gera svona við dóttur mína, væri ég væntanleg með byssu.....
Well....góða nótt AGS (Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn)
»
27.09.2009 00:14:45 / bloggaraspogg
Fattaði í dag að það er í raun kominn vetur *hrollur* Það snjóaði meira að segja!
Og Dabbi kominn í ritstjórastól Moggans! Núna steinhætti ég að lesa Moggann! Best að fá mesta kjaftask þjóðarinnar í að ritstýra íhaldsblaðinu og gera það ennþá pólítískara! Glætan að ég myndi kaupa það núna....reyndar hef aldrei keypt Moggann en þáð fríar áskriftir í mánuð hingað til. Það er búið núna sko!
Aftur á móti lét ég plata mig til að kaupa mánaðaráskrift að DV gegn því að fá tvo mánuði fría. Vandamálið er að blaðið er ekkert að koma til mín og ég ætla sko að neita að borga þennan mánuð!
Sat í heimahússpartýi í gær og lét reykja mig í kaf auk þess sem ég vakti til kl hálfsjö áður en ég gat komið liðinu heim. Allir orðnir vel fullir og reyktir. Fékk að heyra um daginn að ég væri örugglega engill þar sem ég hvorki reykti né drykki. Skelfilega er þá geislabaugurinn minn skörðóttur og vængirnir rifnir! Ég geri nú ýmsa aðra óengilsvæna hluti sko!
Ég ætla að skreppa í ræktina í fyrramálið og labba klukkutíma á brettinu. Hef ekki nennt í ræktina núna í fjóra daga....hvurslags Adda! Fínt að glápa á kassann yfir göngutúrnum....
Hugsa um að koma mér í rúmið.... Kveðja, AGS
»
15.09.2009 23:42:37 / bloggaraspogg
Það nýjasta sem er að frétta úr herbúðum Bold and the Beautiful er að Stephanie var skotin eftir dramatíska sýningu Forrester, og ekki virðist vera á hreinu hver gerði það. Þó liggja allir undir grun þar sem Stephanie var ekki vinsælasta kona borgarinnar.....
Allavega virðast málin standa núna þannig að Stephanie (sem lifði skotárásina af) bendir nú á Donnu Logan (systur Brooke). Hún hefur fulla ástæðu til að ganga frá Donnu því Eric ætlaði að skilja við Stephanie vegna Donnu. Aftur á móti held ég ekki að Donna hafi skotið hana. Ég held að það hafi verið Jackie (mamma Nick). Sú kona kom með Nick á sýninguna og Stephanie henti henni út. Næsta sem ég sá af Jackie var að hún var á harðahlaupum að henda niður í tösku og ætlaði langt í burtu. Það bendir eiginlega til sektar....
Þetta er allt hið versta mál þar sem ekki bara Donna Logan tengist fjölskyldunni af systrunum, heldur eru Brooke og Ridge saman (í hundraðasta skipti) og Katie og Thorne. Allar hafa þessar systur ástæðu til að kála kellingunni og þá ekki síst pabbi þeirra sem hatar Stephanie eins og pestina. Fyrir utan að Stephanie kom því til leiðar um daginn að Brooke var nauðgað, lét hún Feliciu og Thorne læsa Donnu inni í gufubaði fjölskyldunnar í kjól og fínheitum meðan sýningin stóð yfir. Fer engum sögum um það að ekki fór gufan vel með andlitsfarðann og kjólinn....
EN...það allra, allra nýjasta er að nú er allt í einu Pam systir Stephanie dottin ofan af himnum með pottsteik og fínt handa Eric. Hún bara kom með töskurnar sínar og flutti inn. Það dylst engum að hún er þvílíkt að reyna við hann.....Reyndar skil ég ekki hvað þessar konur sjá við Eric en það er kannski ekki að marka þar sem ég hef smekk fyrir konum en ekki körlum......
Það er viðburðaríkt lífið á göngubrettinu í Nautilus...ég og Bold and the Beautiful....
Kveðja úr Lundarbrekku... Me out
»
08.09.2009 10:02:27 / bloggaraspogg
Það er komið haust. Fallegu haustlitirnir komnir og kul í lofti. O jamm og jæja....árið líður alltaf og árin líða hraðar og hraðar. Bráðum verð ég komin á elliheimili hehe....
Ég er að prjóna sokka á Sunnu með norsku mynstri og þeir eru ekkert smá seinlegir! Ég verð tvö ár með þá ef svona heldur áfram!
Annars er ég svona aðeins að pæla í hvort ég á að byrja að prjóna fyrir Handprjónasamband Íslands og selja peysur. Það er alveg verðugt verkefni því ég geri fátt annað þessa dagana hehe...jú nema kannski að láta Dóru læra!
Heimanám barnsins í 6. bekk er alveg fáránlegt! Hún er með ADHD og allskonar raskanir og þetta heimanám virkar sko ekki alveg fyrir hana! Ég var að skrifa kennaranum meil og spyrja hana hvort hún ætli í alvöru að láta krakkann læra allt þetta!
Minnir mig helst á Kennóárin þegar ég sat sveitt yfir verkefnum alla daga. Sem betur fer eru þau ár liðin!
Fuck hvað ég er andlaus! Kveðja, Adda
»
29.08.2009 23:27:36 / bloggaraspogg
Sit uppi með litla pissudúkku sem pissar stanslaust í sængina mína...fer að verða leið á þessu, gef henni einn sjens, annars reyni ég að losa mig við hana...
Sé ógó eftir að hafa tekið þetta litla stýri, blessaður kötturinn minn hann Rómeó er sárlega móðgaður og kemur varla heim núorðið. Alexandra er mjög sæt og hefur guðdómleg augu en fegurðin fer fljótlega af henni þegar hún notar sængina mína fyrir klósett!
Stundum gerir maður mistök...þá er að leiðrétta þau. Langar að skila pissudúkkunni aftur til síns heima!
Man eftir frétt um hjón sem ættleiddu litla stelpu og ári síðar komu þau á ættleiðingarstofuna og vildu skila henni aftur, sögðu að hún hefði ekki aðlagast fjölskyldunni. Kannski pissaði hún alltaf í sængina þeirra.....
Auðvitað ætti maður að hafa skilarétt á börnum og dýrum, maður veit svosem aldrei hvernig eintak maður fær. Man að Dóra var veik fyrstu þrjú árin og oft langaði mig svo sannarlega að skila henni! Fékk samt á tilfinninguna að fæðingardeildin myndi ekki taka við henni aftur....
Ok...síðast bloggaði ég um leyndarmál nágranna....síðan hefur komið í ljós að stelpu í BNA sem var rænt fyrir 18 árum, þá 11 ára gamalli hefur allar götur síðan verið haldið í fangelsi í bakgarði ræningjanna og þau notað hana fyrir kynlífsleikfang! Smart....hvernig getur þetta fólk sofið á nóttunni? Stúlkan hefur eignast tvær dætur með ræningjanum, þær hafa engin af þeim gengið í skóla og ekki farið til læknis. Hvernig refsingu gætuð þið hugsað ykkur fyrir þessi hjón?
Þeir sem eru á móti dauðarefsingu ættu að velta fyrir sér þeirri staðreynd að lífstíðarfangelsi fyrir svona skrímsli setur það í flokk með venjulegum morðingja sem kannski drepur snöggt og sársaukalaust. Finnst ykkur það sama og að eyðileggja líf þriggja manneskna fyrir ævina?
Skrímsli eins og þessi hjón og Josep Fritzl í Austurríki eiga ekkert annað skilið en dauðarefsingu....þau eru algjörlega búin að fyrirgera rétti sínum til að lifa....
Ég ætla á eftir að smeygja mér inn um gluggann hjá stráknum sem býr hér við hliðina á mér og athuga hvort hann geymir 12 ára stelpu undir rúmi eða bundna í skápnum.....kemst alveg inn um gluggann, er orðin svo mjó.....
Kveðja AGS
»
Síður: 1 2 3 ... 22
|